Fjáröflun fyrir íþróttafélög og hópa
Allt á einum stað – við hjálpum ykkur að gera fjáröflunina árangursríka!
Góð fjáröflun þarf að vera vel skipulögð, markviss og arðbær. Hjá söfnun.is fáið þið allt fyrir söfnunina á einum stað, svo sami hópurinn getur verið með mismunandi fjáraflanir í gangi allt árið og skilað hámarksárangri. Vörurnar eru valdar með það að markmiði að skila góðri framlegð, vera nytsamlegar og í þeim gæðum að kaupandinn sé tilbúinn að kaupa þær aftur og aftur. Mikill hluti varanna er sérinnfluttur eða í stærri pakkningum en almennt gerist, og þær stangast því ekki á við vörur sem fást í stórmörkuðum landsins.
Er það ekki draumur hvers hóps að fjáraflanir séu svo vel skipulagðar allt árið um kring að enginn þurfi að leggja út fyrir félagsgjöldum, keppnisferðum eða æfingafatnaði? Við hjálpum ykkur að safna fyrir því sem skiptir máli, í samvinnu við ykkur hverju sinni. Vörurnar eru sendar til ykkar innan höfuðborgarsvæðisins, en einstaklingar og minni hópar sækja þær sjálfir. Þjónustan er ykkur að kostnaðarlausu.
Fjáröflun er skemmtileg leið til að safna fyrir keppnisferðir, utanlandsferðir, æfingargjöld eða æfingarfatnað. Einnig eflir hún félagsleg tengsl sem og treystir hópeflið. Það hefur einnig gefið góða raun að taka fyrirfram ákveðið magn sem er ákveðið á alla og þannig tekur allur hópurinn virkan þátt í fjáröflununni. Það er að reynast ótrúlega vel og skapar drífandi anda í hópnum. Endilega hafið samband: [email protected] eða [email protected]
Ath. vinsamlegast hafið samband áður en lagt er af stað í sölu.
Vinsælt núna
Brönspakki
Katrin Plus Eldhúsrúllur
KATRIN Plus WC pappír
Fjölnota Bökunarpappír
Pappírsvara
Bjóðum upp á margar gerðir af úrvals eldhús- og salernispappír. Við val á pappír skiptir sköpun að viðkomandi hafi áhuga á að kaupa hann aftur og aftur.
Katrin Eldhúsrúllur
Katrin Plus Eldhúsrúllur
KATRIN Plus WC pappír
KATRIN WC pappír
Matvörur
Við val á vörum er alltaf haft að leiðarljósi að gæðin séu 100%. Lakkrís, gulrætur, harðfiskur falla alltaf vel í kramið.














































